Götusópur fer af stað í Fjallabyggð

Með hækkandi sól fer götusóparinn af stað.
Fimmtudaginn 2. maí hefjumst við handa við árlega hreinsun gatna. Ááætlað er að þetta standi yfir í nokkra daga.

Við biðjum bæjarbúa um að fylgjast vel með og færa til ökutæki ef kostur er á til að auðvelda hreinsun gatna.