Skráning er hafin í Vinnuskóla Fjallabyggðar sumarið 2024

Skráning er hafin í Vinnuskóla Fjallabyggðar sumarið 2024

Skráning í Vinnuskóla Fjallabyggðar er heimil unglingum ef þeir uppfylla eitt eða fleiri af eftirfarandi skilyrðum:

  • Þeir hafa nýlokið námi í 8., 9. eða 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar.
  • Hafa lögheimili í Fjallabyggð.
  • A.m.k. annað foreldrið hefur lögheimili í Fjallabyggð.

Forráðamenn þurfa að skrá unglinginn sinn í vinnuskólann. Skráningin fer fram í tölvupósti á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is

Upplýsingar sem þurfa að fylgja skráningu eru:
Nafn og kennitala unglings:
Lögheimili:
Bankareikningur (launareikningur):

--------------------------------------------------------------------------

Vakin er athygli á að árið sem 16 ára aldri er náð verður skattskylda eins og hjá fullorðnum og þarf launþegi að ráðstafa persónuafslætti til vinnuveitanda. Ráðstöfun persónuafsláttar er á ábyrgð launþega.
Upplýsingar um hvernig ráðstafa eigi persónuafslætti verða sendar með tölvupósti.

Dagsetningar
Skólinn hefst mánudaginn 10. júní kl. 8.30 hjá öllum.
Nemendur búsettir á Siglufirði mæta í Áhaldahús Fjallabyggðar. Nemendur búsettir á Ólafsfirði mæta í aðstöðu Áhaldahúss, Námuvegi 4.
Áætlaður lokadagur vinnuskólans er miðvikudagur 31. júlí. Þó gefst ungmennum sem lokið hafa 10. bekk kostur á að vinna til 2. ágúst.

Vinnutími:
Ungmenni sem nýlokið hafa 8. bekk: Mætt er fyrir hádegi fimm daga í viku, frá kl.8:30 til kl.12. Einnig er hægt að haga vinnu þannig til ef einstaklingur vill frekar vinna frá 13:00 - 16:30 þá er það í boði líka. Daglegur vinnutími reiknast 3,5 klst. eða 17,5 tímar á viku.
Ungmenni sem nýlokið hafa 9. bekk: Unnið frá kl.8:30 til 12 og frá kl. 13:00 til 16:30. Daglegur vinnutími reiknast 7 klst. Unnið er 3,5 klst. fyrir hádegi á föstudögum. Samtals möguleiki á 31,5 klst. vinnu á viku.
Ungmenni sem nýlokið hafa 10. bekk: Unnið frá kl.8:30 til 12 og frá kl. 13:00 til 16:30. Daglegur vinnutími reiknast 7 klst. Samtals möguleiki á 35 klst. vinnu á viku.
Vinnuskólinn áskilur sér rétt til að takmarka frekar vinnutíma ef skráning fer fram úr áætlunum.

Verkefni vinnuskólans:
Almenn störf og áherslur í vinnuskóla eru garðyrkja, gróðursetning, hirðing á lóðum og opnum svæðum bæjarins.

Skóla- og starfsreglur vinnuskóla Fjallabyggðar