Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar
1.Erindi frá íbúum við Eyrarflöt á Siglufirði vegna lyktarmengunar
3.Uppfærsla á deiliskipulögum Fjallabyggðar
4.Deiliskipulag - Skólareitur Siglufirði
5.Ósk um að setja upp fjárrétt sunnan við Hesthúsaveg á Siglufirði
6.Hafnargata 4, Siglufirði
7.Umsókn um byggingarleyfi
9.Umsókn um byggingarleyfi, Suðurgata 49
10.Umsókn um leyfi til breytinga á Norðurgötu 4b
11.Tilkynning um sölu á jörðinni Kálfsárkot í Ólafsfirði
12.Tilkynning um sölu á jörðinni Karlsstaðir í Ólafsfirði
Fundi slitið - kl. 16:30.
Lagður fram undirskriftalisti íbúa við Eyrarflöt á Siglufirði, þar sem þeir fara fram á það við bæjaryfirvöld að þau geri viðeigandi ráðstafanir til að stemma stigu við óþolandi lyktarmengun á svæðinu, sem að langmestu leyti virðist eiga upptök sín í króknum í fjörunni neðan Langeyrarvegar eins og það er orðað í erindinu.
Einnig er minnisblað umhverfisfulltrúa og heilbrigðisfulltrúa Norðurlands vestra lagt fram, þar sem meðal annars kemur fram að búið er að taka sýni úr fjöruborðinu á umræddum stað. Niðurstöður vegna þessarar sýnatöku liggja ekki fyrir að svo stöddu.
Að lokum eru lagðar fram tillögur tæknideildar að úrbótum á fráveitu og fyllingu í krikann.
Nefndin samþykkir að tillögu tæknideildar, að fyllt verði að hluta til upp í krikann þar sem lyktarmengunin er sýnu verst skv. minnisblaði umhverfisfulltrúa og heilbrigðisfulltrúa Norðurlands vestra.
Einnig felur nefndin tæknideild að kostnaðarmeta og óska eftir fjármagni í varanlegar úrbætur á fráveitu til bæjarráðs.